Sólríkur Skírdagur

Gleðilegan Skírdag 

Jæja, páskarnir allveg að koma, páskaeggið bíður uppí hillu og löngunin er mikil í að krækja mer í smá bita af þvi!!
Fór svo seint að sofa í gær, útaf þessari síður, en þolinmæði er gulls ígildi. Vona bara að síðan verði flott svo þetta var klukkustundana virði hehe.
Afmælis barnið hún Marta var bara komin uppá jökul þegar ég vaknaði, eitthvað um 1 leytið. Það var svo geðveikt veður að ég tyllti mér bara úta pall í bleika sloppnum mínum og fór í smá sólbað, bara andlits samt, má ekki trylla  nýju nágrannana svona árla morguns :P Var ekki allveg að treysta mér í það þar sem eg held að þetta séu óforbetranlegir útlendingar. Einu sinni var eg að koma úr skólanum og fór inn um svaladyrnar og síðan heyri ég e-ð voða bank á rúðu og lít upp, haldiði að það sé ekki félagar minir í rúðunni heima hjá sér að banka á rúðuna og veifa, krúttlegt.

Seinustu helgi fór ég i rvk og á föstudagskvöldið fór á Ice Age 2 með Sonju og Guðbjarti og hún var svo brjálað fyndin, fékk verk í hjartað á að hlægja svona dátt, alls ekki síðri en fyrsta myndin. Mæli sterklega með henni. Jæja, ætlaði bara aðeins að krassa e-ð hingað, þar sem marta er uppá jökkli og ég búin að fara á hestbak ætla ég að fara skella mér í góða sturtu, ciao!

Sunna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég fór líka í sólbað í morgun.. skellti mér í pottin og ég er ekki frá því að hafa tekið smá lit.. en ég verð að viðurkenna að þú hafir verið meira sexy í sólbaði þar sem þú vast í bleikum slopp ;) Án efa mjög sexy... svo að kanski hafa nágrannarnir tryllst við að sjá þig í honum... hver veit ?
kv.Tinna

Tinna (IP-tala skráð) 13.4.2006 kl. 18:48

2 identicon

Jaaá maður veit aldrei hvað kveikir í þessum nýbúum hehe :P

Sunna (IP-tala skráð) 13.4.2006 kl. 18:52

3 identicon

hvaða nýju nágranna... plís ekki segja mér að það eru komnir íbúar í hvamminn ?? ég sem var að striplast inní herbergi áðan..össs

p.s. hvaða bleiki sloppur....? þú ert væntanlega að tala um forngripinn hennar mömmu sem er innanpíkubleikur og mjög svo "halllló" (as in hallærislegur en ekki "hæ")

sonja

Sonja (IP-tala skráð) 14.4.2006 kl. 03:17

4 identicon

Hey gella, þetta er brjálaður sloppur sem ég hef notið afnota af, og þó hann er vísu frá 1974, en stendur fyrir sínu! og jú í íbuðinni sem gluggarnir vísa að pallinum okkar.

sunna (IP-tala skráð) 14.4.2006 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband