Sárþjáð!

Sæl

Hvað segiði? ákvað að smella einu bloggi hér inn um þjáningar minar.
eins og mörg ykkar vita fótbrotnaði ég á miðvikudaginn og var send suður með þyrlu. Fóturinn brotnaði í tvennt, enda hékk hann eins og gúmmí eins og í teiknimyndum á æfingunni þegar þetta var nýbúið að gerast, og nei ég sparaði ekki öskrinn.
Eftir að hafa kvalið þyrluáhöfnina með söng mínum ,, ég á unga laglega litla snót og langar að fara á stefnumót með henni, hvert einasta kvöld'' lennti ég i rvk klukkan e-ð, var nu ekki mitt helsta áhyggju efni hvað tímanum leið...
Og já til að gera langa sögu stutta var ég á landspitalanum í fossvogi og fór í aðgerð þar, er ekki með gifs heldur var látt tein í beinið og hann negldur sitthvoru megin, fyrir þá sem átta sig ekki allveg á þá brotnuðu báðar pípurnar ( beinin) í sundur í kálfanum, s.s skoflungurinn fór i tvennt.
núna er ég á barnaspitala hringsins að krúsa um á hjólastól og fara á kostum í öllum FIFA leikjum sem gert hafa verið.
Fór til sjúkraþjálfa í dag á hinum spítalanum og hun sagði mér að gera bara léttar æfingar til að byrja með, hreyfa ökklann smávegis og auka blóðflæðið með tásuhreyfingum.
Er allveg hrikalega bólgin og gul og fjólublá og búin að missa alla hreyfigetu í vöðvunum en þetta er alld saman að lagast.
Verð með teinin í fótinum í ár en þetta verður svona 8-10 vikur að lagast.
Verð að fara núna því að bólgan í kálfinum er að stoppa hringrás blóðflæðsins.
Skila kveðju heim, faðmlög og fríðindi
-Sunna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Láttu þér batna Sunna og hafðu það gott á spítalanum :)

Dabbi (IP-tala skráð) 5.5.2006 kl. 23:13

2 identicon

æjji ástin min þú ert stórkostleg að vera syngjandi þarna á leiðini heheheh!! en já þú ert stórkostleg elsku kruttið mitt..:O farðu vel með þig..(K)(K)

hafrun (IP-tala skráð) 6.5.2006 kl. 12:00

3 identicon

láttu þér batna áwstin mín ;** (L)

Kolka (IP-tala skráð) 6.5.2006 kl. 12:03

4 identicon

en samt sama sunnan:D gott það:P Hlakka til að fá þig heim...

Sigrún (IP-tala skráð) 6.5.2006 kl. 16:23

5 identicon

ahh...þú ert hetja láttu þér batna :)

BIRKIR og er að kommenta :D (IP-tala skráð) 6.5.2006 kl. 16:54

6 identicon

æjj sunna mín en leiðinlegt fyrir þig.. það er óggisslega vont að fótbrotna.. en láttu þér batna

Lilja k. (IP-tala skráð) 8.5.2006 kl. 14:15

7 Smámynd: Sunna og Marta

Ég held að þessi síða sé steindauð...

Sunna og Marta, 16.5.2006 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband