-Marta
Bloggar | 19.5.2006 | 10:59 (breytt kl. 10:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sæl
Hvað segiði? ákvað að smella einu bloggi hér inn um þjáningar minar.
eins og mörg ykkar vita fótbrotnaði ég á miðvikudaginn og var send suður með þyrlu. Fóturinn brotnaði í tvennt, enda hékk hann eins og gúmmí eins og í teiknimyndum á æfingunni þegar þetta var nýbúið að gerast, og nei ég sparaði ekki öskrinn.
Eftir að hafa kvalið þyrluáhöfnina með söng mínum ,, ég á unga laglega litla snót og langar að fara á stefnumót með henni, hvert einasta kvöld'' lennti ég i rvk klukkan e-ð, var nu ekki mitt helsta áhyggju efni hvað tímanum leið...
Og já til að gera langa sögu stutta var ég á landspitalanum í fossvogi og fór í aðgerð þar, er ekki með gifs heldur var látt tein í beinið og hann negldur sitthvoru megin, fyrir þá sem átta sig ekki allveg á þá brotnuðu báðar pípurnar ( beinin) í sundur í kálfanum, s.s skoflungurinn fór i tvennt.
núna er ég á barnaspitala hringsins að krúsa um á hjólastól og fara á kostum í öllum FIFA leikjum sem gert hafa verið.
Fór til sjúkraþjálfa í dag á hinum spítalanum og hun sagði mér að gera bara léttar æfingar til að byrja með, hreyfa ökklann smávegis og auka blóðflæðið með tásuhreyfingum.
Er allveg hrikalega bólgin og gul og fjólublá og búin að missa alla hreyfigetu í vöðvunum en þetta er alld saman að lagast.
Verð með teinin í fótinum í ár en þetta verður svona 8-10 vikur að lagast.
Verð að fara núna því að bólgan í kálfinum er að stoppa hringrás blóðflæðsins.
Skila kveðju heim, faðmlög og fríðindi
-Sunna
Bloggar | 5.5.2006 | 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ákvað að skella inn hérna smá bloggi, erum ekki alveg að standa okkur í þessu.
- Samræmduprófin byrjuð, er búin með 2 og á helming eftir. Eins gott að fara byrja læra stóð mig ekkert sérlega vel í hinum.
- Æfingaraksturinn loksins að fara renna í garð, jájá seinasti tíminn í dag:D Búið að draga þetta alveg nóu lengi, eða kanski er ég svona lélegur driver að hann (ökukennarinn) hafi hingað til ekki þorað að láta mig fá hann strax?
- Sunna ástin mín er á spítala:( Var send með þyrlu í bæinn í gær. Tvíbrotnaði á fótboltaæfingu, bara harka í liðinu:D Er í aðgerð núna held ég. Talaði við hana í gær meðan hún var að bíða eftir þyrlunni, greyið var svo kvalin. Svo tala ég nú ekki um öskrin í henni á læknana fjúff greyið þeir hún er svo mikil óhemja:D
- Ætla ekki að hafa þetta lengra.
- Stay Tuned
- Marta
Bloggar | 4.5.2006 | 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Gleðilegt Sumar píps
Var búin að skrifa hérna 10 lína blogg en nei slökknar ekki á helvítis tölvunni þannig að ég geri bara svona punkta um það sem hefur á daga mína drifið.
© Fór uppá jökul í gær með frændum mínum og bauð Sunnu með.
© Renndi mér niður Snæfellsjökulinn á stígasleða haha.
© Kenndi Sunnu á vélsleða.
© Við Sunna krúsuðum saman á sitthvorum vélsleðanum á jöklinum.
© Harðsperrurnar farnar að segja til sín.
© Byrjuð í ökutíma og fæ brátt æfingaleyfi.
© Fór í Borgarnes í dag eða réttarasagt Bifröst með Sunnu og co.
© Ágætis skóli, kanski að maður fari þangað eftir fjölbraut?
© Samræmduprófin að nálgast og efast ég um að ná þeim:S
© - Marta
Bloggar | 20.4.2006 | 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ég verð að komast yfir, á meðan lostinn lifir, ohh greifarnir eru náttúrulega bara sniiiilllld!!
Ég sit hér, ótrúlega fersk að slefa yfir myndum af engum öðrum en Alessandro Nesta að syngja hástöfum með Greifunum, sígillt band! Ég vil bara eiga nótt, svo hverf ég fljótt...Þessi dagur er búin að vera góður, var á hestbaki í allan dag en í gærkvöldi fór ég í teitið til Gussa og það var villt!... nei, létuði ekki platast? það var ýkt rólegt, ég var bara í heimasímanum hja gussa að tala við hafruni allt kvöldið haha!nei nei, segi svona. Alexandra allveg wasted, fór úr öllu nema leggíngs og hlírabol og stakk sér í ískaldan pottin í snjónnum! Öss hvað MSN er fjölnotanlegt, er í þessum töluðu orðum að miðla landafræði visku minni í þurfandi einstaklinga á msn, já það kemur ser betur heldur vel að kunna sitt fyrir i Landafræðinni!
Var mjög hörð áðan, barst á fáki fráum og hrækti blóði, það var nu reyndar bara utaf ég kýldi sjálfa mig óvart og hrækti blóði allveg í góðan tíma eftir á, en samt sem áður mjög galvölsk! Var nú fremur vont. jaaaá, einhverstaðar heyrði maður að Guðum blæddi ekki, en annað hefur nú komið á daginn, það ku vera satt samt að það sé mannlegt að gera misstök en guðlegt að fyrirgefa. Er það ekki annars?Já, hvað á maður svo að gera af sér í aften? þýðir varla að sitja hér og hlusta á Greifana og Bjögga Halldórs langt fram á nótt :D
Var að lesa greinina um Ásthildi Helgadóttur, þarna spurningunum sem hún svarar, nokkuð grúvað sko, ef ég fæ það bessaleyfi að sletta örlítið...Sko textarnir á svona gömlum lögum eru allveg yfirnáttúrulega góðir
,, ég á unga laglega, litla snót og langar að fara á stefnumót með henni, hvert einasta kvöld''
,, Kossar þínir kveiktu eld í minni sál, þú ert stúlkan mín, það er engin önnur''
,, Já ástin lokkar menn, og leiðir það er víst. ég arka á eftir þér og hjartað í mér brýst um''
,, Það er svo huggulegt hér, að hlusta á plötu einn með þér''
,, Ég lifi í draumi, dreg hvergi mörkin dags og nætur, sveiflast aðeins ósjálfrátt. í hægum gangi, á i fullu fangi að finna það sem oftast reynist öfug átt''
Ohh já þessi gömlu góðu dægurlög, en þarf að fara !
Kveðjur- í fullu fjöri
Sunna
Bloggar | 15.4.2006 | 23:06 (breytt 16.4.2006 kl. 13:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Já stelpan varð 16 ára í dag! Búin að eiga frábæran dag Vaknaði og skellti mér svo á Snæfellsjökulinn með mínum ástkæru ættingjum! Ekki byrjaði ferðin vel, lentum i smá basli á leiðinni upp á bílnum en það reddaðist. Og já viti menn Marta fór alveg uppa topp:D Er með heljarinnar harðsperrur i rassinum þar sem að vélsleðinn hossaðist svo mikið á leiðinni:D ég og Steina frænka renndum okkur saman niður á einum stígasleða, nokkuð skrautlegt alltaf að detta ... og svo fórum við bara heim í kökur, mamma var svo sæt i sér að baka. Kíkti svo út með stelpunum, tókum rúnt með Ólöfu og svo var bara farið heim ;)
En vá hvað ég er tóm,veit ekkert hvað ég á að skrifa þannig að þetta verður ekki lengra!
-Marta
Bloggar | 14.4.2006 | 01:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Gleðilegan Skírdag
Jæja, páskarnir allveg að koma, páskaeggið bíður uppí hillu og löngunin er mikil í að krækja mer í smá bita af þvi!!
Fór svo seint að sofa í gær, útaf þessari síður, en þolinmæði er gulls ígildi. Vona bara að síðan verði flott svo þetta var klukkustundana virði hehe.
Afmælis barnið hún Marta var bara komin uppá jökul þegar ég vaknaði, eitthvað um 1 leytið. Það var svo geðveikt veður að ég tyllti mér bara úta pall í bleika sloppnum mínum og fór í smá sólbað, bara andlits samt, má ekki trylla nýju nágrannana svona árla morguns :P Var ekki allveg að treysta mér í það þar sem eg held að þetta séu óforbetranlegir útlendingar. Einu sinni var eg að koma úr skólanum og fór inn um svaladyrnar og síðan heyri ég e-ð voða bank á rúðu og lít upp, haldiði að það sé ekki félagar minir í rúðunni heima hjá sér að banka á rúðuna og veifa, krúttlegt.
Seinustu helgi fór ég i rvk og á föstudagskvöldið fór á Ice Age 2 með Sonju og Guðbjarti og hún var svo brjálað fyndin, fékk verk í hjartað á að hlægja svona dátt, alls ekki síðri en fyrsta myndin. Mæli sterklega með henni. Jæja, ætlaði bara aðeins að krassa e-ð hingað, þar sem marta er uppá jökkli og ég búin að fara á hestbak ætla ég að fara skella mér í góða sturtu, ciao!
Sunna
Bloggar | 13.4.2006 | 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Jæja við stöllur höfum ákveðið að gera aðra bloggsíðu saman, vonandi að þessi síða verði ekki jafn dauð og hin var Erum búnar að basla við þetta i 5 klukkustundir án árangurs, en þetta er einhvað að smella saman núna. Eygum samt í erfiðleikum með að henda einhverju drasli útaf sem heitir "tónlist".En nóg um það! Myndir af vinum er undir "albúmin mín" þið finnið þetta...bloggum meira a morgunn!
-Sunna og Marta
Bloggar | 13.4.2006 | 03:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tenglar
Eitthvað annað
Litlu krílin
smáfólkið
Bloggarar
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar